Prófastsdæmið

Meðal þeirra verkefna sem prófastsskrifstofan annast er undirbúningur og framkvæmd margvíslegra námskeiða og funda og ýmiskonar þjónusta við starf söfnuðanna og sérþjónustunnar. Þá er leitað til prófastsskrifstofunnar með fyrirspurnir og beiðnir, bæði frá kirkjulegum aðilum utan prófastsdæmis, einstaklingum og fjölmiðlum.

Starf prófasts er samkvæmt 7. gr. starfsreglna um prófasta (nr. 734/1998) m.a. eftirfarandi:

“Prófastur er fulltrúi biskups í prófastsdæminu, trúnaðarmaður hans og ráðgjafi í kirkjulegum málum. Prófastur hefur í umboði biskups almenna tilsjón með kirkjulegu starfi í prófastsdæminu, stuðlar að því að það gangi sem best fyrir sig og lögum samkvæmt.

Prófastur er ráðgjafi og tilsjónarmaður presta og sóknarnefnda.

Prófastur, sem formaður héraðsnefndar, er í fyrirsvari fyrir prófastsdæmið að því er varðar sameiginleg málefni þess, gagnvart stjórnvöldum, stofnunum og einstaklingum. Hann fylgist með því að réttur kirkjunnar sé virtur í hvívetna”.

Um héraðspresta segir m.a. í starfsreglum um presta (nr. 735/1998) að “héraðsprestur annist reglulega messuafleysingu, þar sem ástæða þykir til” (35. gr.) og “aðstoði prófast og presta við að skipuleggja fræðslumál á þjónustusvæði sínu” (36. gr.).

Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir

prófastur

S: 698-4958

sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is

Berglind Hönnudóttir
starfsmaður prófastsdæmisins.
Guðfræðingur og reynslubolti í barna- og æskulýðsstarfi

S: 773-3373

Ingibjörg Jóhannsdóttir
Djákni og starfmaður prófastsdæmis
S: 760-1033

Ingibjorg.Johannsdottir@kirkjan.is

Héraðsnefnd

Í héraðsnefnd prófastsdæmisins sitja:

  • Sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir, Seyðisfjarðarsókn
  • Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, Fáskrúðsfjarðarsókn
  • Ólafur Eggertsson, Berufjarðarsókn