Það var hátíðleg og gleðileg stund þegar prófastur Austurlandsprófastsdæmis, sr. Sigríður
Rún Tryggvadóttir, setti inn í embætti sr. Arnald Arnold Bárðarson prest og Ingibjörgu
Jóhannsdóttur djákna, í vel sóttri guðsþjónustu á Djúpavogi sunnudaginn 21. maí.
Við innsetninguna las sr. Sigríður Rún kveðju frá sóknarprestinum sr. Jónu Kristínu.
Þorvaldsdóttur og einnig las hún erindisbréf prests og djákna frá biskupi Íslands, frú Agnesi
M. Sigurðardóttur.
Við athöfnina prédikaði Ingibjörg og deildi reynslu sinni af því að hafa þjónað í norsku
kirkjunni og því að hafa starfað við sérkennslu.
Vel mannaður kór svæðisins leiddi söng undir stjórn og undirleik Kristjáns Ingimarssonar og
að athöfn lokinni var öllum viðstöddum boðið í dýrindis kjötsúpu í kirkjuskipinu sem er
einmitt fjölnota rými sem hentar söfnuðinum vel.
Arnaldur og Ingibjörg munu manna suðurhluta prestakallsins og hafa búsetu á þeim
fornfræga og virðulega stað Heydölum. Þá hefur Ingibjörg sérstakar skyldur við
prófastsdæmið allt í sínu starfi.