Héraðsfundur Austurlandsprófastsdæmis átti að fara fram sunnudaginn 7. apríl- en í ljósi slæmrar veðurspár var honum frestað. NÝ DAGSETNING ER 28. APRÍL kl. 10-17.
Fundurinn fer fram í Kirkjumiðstöð Austurlands við Eiðavatn.
Á dagskrá eru hefðbundin störf héraðsfundar og kosningar í stjórnir og ráð.
Öllu áhugasömu þjóðkirkjufólki er velkomið að mæta á héraðsfundi með málfrelsi og tillögurétt.
Fundargestum er boðið í hádegismat og kaffi, vinsamlegast tilkynnið um þátttöku fyrir 24. apríl nk. á netfangið sigridur.run.tryggvadottir@kirkjan.is