​​

Egilsstaðakirkja

Sunnudagaskóli alla sunnudaga kl. 10:30 – Við hittumst í Safnaðarheimilinu nú á vorönn.

Sunnudaginn 4. febrúar verður vöfflukaffi – Fögnum hækkandi sól! Börn á öllum aldri velkomin!

Hádegisbæn í Safnaðarheimili alla þriðjudaga kl. 12:00.

Reyðarfjarðarkirkja

Sunnudagur 4. febrúar

kl. 11:00 Sunnudagaskóli

kl. 20:00 Kvöldmessa – séra Benjamín Hrafn þjónar fyrir altari. Kór Reyðarfjarðarkirkju syngur undir stjórn Kaido Tani. Gengið verður til altaris í messunni.

Seyðisfjarðarkirkja

Sunnudaginn 4 .febrúar brjótum við upp hið hefðbundna messuform og verðum með íhugunarmessu í Seyðisfjarðarkirkju kl. 11, með áherslu á kristna íhugun og bæn og altarisgönguna. Kór Seyðisfjarðarkirkju leiðir söng, organisti er Hlín Pétursdóttir Behrens. Meðhjálpari Jóhann Grétar Einarsson og sr. Sigríður Rún Tryggvadóttir þjónar fyrir altari.

Léttur hádegisverður í safnaðarheimili eftir messu. Verið velkomin