Egilsstaðakirkja:

10. desember:

Sunnudagaskólinn í jólaskapi kl. 10:30 í Safnaðarheimilinu. Heitt súkkulaði og piparkökur eftir stundina.

Aðventuguðsþjónusta á hjúkrunarheimilinu Dyngju kl. 15:00. Kór Egilsstaðakirkju syngur. Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir þjónar.

Aðventuhátíð kirkjunnar kl. 18:00. Barnakór kirkjunnar kemur fram, Kór Egilsstaðakirkju syngur ásamt hljóðfæraleikurum, frásögn um „Jól í Moldavíu“ o.fl. Stundinni lýkur að vanda með hátíðlegri kertaljósaathöfn. Sr. Þorgeir Arason leiðir stundina. Organisti og kórstjóri Sándor Kerekes.