Sumarbúðirnar á Eiðum

Sumarbúðir kirkjunnar á Eiðum eiga sér langa sögu. Aðdráttarafl svæðisins er mikið og við vatnið er sannkölluð ævintýraveröld sem þar sem fjöldi barna og unglinga unir sér við leik og starf á hverju sumri. Margir hafa bundist vináttuböndum við Eiðavatn og eignast góðar minningar þaðan, enda vilja flestir koma aftur ár eftir ár.

Barna- og unglingaflokkar

Í sumarbúðunum er boðið upp á ógleymanlega dvöl fyrir krakka fædda 2010 – 2017. Flokkar fyrir 7 – 9 ára börn og 8 – 12 ára börn. Dagskrá hvers flokks er miðuð við þroska og getu barnanna. Þemaflokkur er fyrir börn á aldrinum 8-12 ára, þar er lagt áhersla á sköpun og tjáningu í einstöku umhverfi. Ævintýraflokkurinn er á sínum stað fyrir 12 – 14 ára unglinga sem vilja upplifa öðruvísi og spennandi sumarbúðaævintýri.

Mikið af alls konar skemmtilegri og þroskandi afþreyingu í boði:

  • Fáránleikar
  • Frjálsar íþróttir
  • Föndur
  • Kvöldvökur
  • Kirkja
  • Siglingar á vatninu

Flokkatafla 2024

Flokkur Dags Aldur Fæðingarár Verð Verð sé greitt fyrir 10. apríl
1. fl 10. – 14. júní 7 – 9 ára 2015 – 2017 55.000 kr 50.000 kr
2. fl 18. – 22. júní 8 – 12 ára 2012- 2015 55.000 kr ATH. þrið – lau. 50.000 kr
3. fl 24. – 28. júní 8 – 12 ára 2012 – 2015 55.000 kr Listaflokkur 50.000 kr
4. fl 1. – 5. júlí 12 – 14 ára 2010-2012 55.000 kr Ævintýraflokkur 50.000 kr

Systkinaafsláttur: 10%

Ganga þarf frá greiðslu fyrir dvölina eigi síðar en 10 dögum áður en flokkur hefst. Greiðsluseðill er settur inn á heimabanka greiðenda. Þar koma fram upplýsingar um gjalddaga og eindaga.

Viltu styrkja sumarbúðirnar?

Styrktarreikningur sumarbúðanna er:
0166-05-061616 – kt. 441185-0659

Markmið sumarbúðanna við Eiðavatn er að bjóða börnum og unglingum ógleymanlega sumardvöl þar sem kristin lífsgildi eru höfð að leiðarljósi.

Í sumarbúðunum starfar öflugur hópur leiðtoga með reynslu og þjálfun í barna- og æskulýðsstarfi. Allir starfsmenn sækja námskeið í skyndihjálp, brunavörnum o.fl. Lögð er áhersla á öryggi við bátsferðir.

Sumarbúðirnar eru í fallegu umhverfi við Eiðavatn, u.þ.b. 18 km frá Egilsstöðum. Þjóðkirkjan hefur starfrækt sumarbúðir á Eiðum á hverju sumri frá 1968, þar af frá 1992 í byggingu Kirkjumiðstöðvar Austurlands. Kirkjumiðstöðin er sjálfseignarstofnun á vegum safnaðanna á Austurlandi.

Innritun

Skráning fer fram rafrænt  HÉR og hefst 1. mars á hádegi.

Upplýsingasími er: 892-3890

Sumarbúðarsími er: 892-3890

Einnig er hægt að senda email á berglind.honnudottir@kirkjan.is