Vertu trú(r) allt til dauða, og ég mun gefa þér kórónu lífsins. Opb. 2.10c.

Ferming þýðir staðfesting. Í fermingunni staðfestir barnið skuldbindingu foreldra og guðfeðgina í skírnarathöfninni. Það fer með trúarjátninguna, vinnur fermingarheit og þiggur fyrirbæn og blessun. Fermt er við messu. Til þess að öðlast rétt til að mega fermast stundar fermingarbarnið sérstakt nám í kristnum fræðum hjá presti sínum eða fermingarfræðara, sem kallast fermingarfræðsla. Heimild er fyrir því að barn megi vera til altaris með foreldrum sínum frá unga aldri, en meginreglan er þó sú að við ferminguna eða á meðan fermingarfræðslan stendur yfir, neyti barn í fyrsta sinn kvöldmáltíðarsakramentisins.

Sjá nánar um ferminguna á síðu Þjóðkirkjunnar og á ferming.is.