Egilsstaðakirkja

Sunnudagur 4. desember:

Sunnudagaskóli kl. 10:30.

Aðventukvöld kirkjunnar kl. 18:00.

Fjölbreytt dagskrá: Barnakór Egilsstaðakirkju og Kór Egilsstaðakirkju syngja, fiðlunemendur spila, kertaljósaþáttur fermingarbarna og svo syngjum við saman og komumst í hátíðarskap! Ræðumaður kvöldsins er Jóhanna Harðardóttir, leikskólakennari. Verum velkomin!

Þorgeir Arason, sóknarprestur.

 

Vallaneskirkja

Laugardagur 3. desember

Aðventuhátíð Vallanes- og Þingmúlakirkju kl 15:00.

Valþjófsstaðakirkja

Sunnudagur 4. desember

Aðventuhátíð kl. 20:00.

Heydalakirkja

Sunnudagur 4. desember kl. 11

Fjölskyldustund annan sunnudag í aðventu. Eftir stundina í kirkjunni verður boðið upp á heitt súkkulaði og hægt verður að skreyta piparkökur.

 

Vopnafjarðarkirkja

Sunnudagur 4. Desember:

Jólasunnudagaskóli kl. 11:00.

Fáskrúðsfjarðarkirkja

  1. desember, 2. sunnudag í aðventu:

Sunnudagaskólinn kl.11:00. Aðventustund með börnum og fullorðnum.

Ljósastund í kirkjugarðinum kl. 17.

Safnast saman við minningarlundinn. Minnumst látinna og tendrum á kertum. Að athöfn lokinni er boðið upp á heitt súkkulaði og meðlæti í safnaðarheimilinu.

 

Eskifjarðarkirkja

Sunnudagur 4. Desember, 2. í aðventu:

kl 11:00 Sunnudagaskóli – Kveikjum á aðventukertum og skreytum piparkökur.

kl 13:00 Guðsþjónusta – Kirkjufélagið Geislinn afhendir söfnuðinum nýja sálmabók.